GLEÐILEG JÓL!!!!
VÚPSADEISÍ - varla að
ég þori að blogga því ég skammast mín svo mikið hvað ég er léleg við þetta.
Fólk er pottþétt búið að gleyma þessari síðu hjá mér og eflaust mér líka.
Pattra mín kom s.s. í heimsókn um miðjan nóvember og er nú varla hægt að lýsa því hversu gott það var – svo fáránlega gott að fá knús. Telma var svo yndisleg að leyfa okkur að gista hjá sér og eyddum ég, Pattra, Telma og Cassie helginni saman, allar inni í herbergi hjá Telmu – aldeilis þröngt á þingi. Við kíktum á tjúttið, röltum um borgina, fórum gott út að borða, pöntuðum SVEITT take away, hlógum úr okkur líftóruna, knúsuðumst, hittum íslenska vini, fórum í púl, drukkum hvítvín, gleymdum okkur í 2 tíma í Forever21, kíktum meira í búðir, borðuðum íslenskt nammi, og ég veit ekki hvað og hvað. Yndisleg helgi í alla staði og ætla ég að leyfa myndunum að tala.

Úti að borða fyrsta kvöldið á mexíkóskum stað á 1 avenue.

Ég og Telma ánægðar með þessa útfærslu af hvítvínsglösum.

Við tókum ófáar myndirnar ;-)

Þreyttar eftir ráp í búðum. Þarna beið okkur sveitt take-away handan við hornið.

Myndavélin hennar Pöttru sem var svo stolið um kvöldið af einhverjum fávita.


Í taxanum á leiðinni á tjúttið!!

Lentum í þessu ansi skemmtilega herbergi með grasi og ljótum skóm
þegar við vorum að bíða eftir promoterunum.

Aðeins að nota símann áður en honum yrði stolið.

Skálað í kampavín á Mr. West.

Telma og vinkona hennar Sofie. Hittumst í Brunch á sunnudeginum.

Aðal pæjur Manhattan. Vorum að rölta um 1 av. til að finna okkur góðan sushi
stað.

Fundum hann svo sannarlega, ógeðslega gott sushi.

Krúslan mín

E-ð verður maður að finna sér til dundurs á meðan maður bíður í
taxanum.

Kíktum í púl á The Ward og ég rústaði stelpunum. Ókei, rústaði kannski ekki en vann. ;)

Pattra í nýja vestinu sem hún keypti sér.. haha.. djók

Aðeins að knúsast áður en ég færi heim með rútunni til Connecticut:(

Töffarinn minn

Smá djús í morgunsárið.
Helgina eftir að Pattra kom þá kíktu Telma og Cassie í
heimsókn til mín á föstudagskvöldinu og skelltum við okkur svo saman til Boston
á laugardeginum. Þar hittum við Pétur Óskar og Paul og vini þeirra og elduðum
við saman og kíktum svo á Barlola barinn.

Chu, Paul, ég og Telma á Barlola. Eina mynd ferðarinnar.
Nokkrum dögum eftir það þá fórum ég og Cassie til Long
Island til systkina mömmu hennar , búa í Babylon. Við fórum s.s. á miðvikudegi
og komum svo aftur til New Haven á laugardegi. Fengum að halda upp á
Thanksgiving með þeim, aldeilis mikið stuð. Þar lentum við í þvílíkri veislu
alla dagana, ég heyrði mig svoleiðis fitna þessa helgi. Frændi hennar bauð
okkur með sér í flug um allt Long Island sem var geggjað, kíktum í búðir á
Black Friday en ákváðum að vera ekki eins gráðugar og allt fólkið sem beið
fyrir utan búðirnar kl 5 til að komast inn, svo þau yrðu alveg pottþétt fyrst
að ná sér í allt dótið. Ef þið heyrðuð ekki af því, þá dó starfsmaður í Walmart
sökum þess að hann var traðkaður niður af æstum óþolinmóðum könum sem þutu inn
í kapphlaupum um leið og hurðin var opnuð kl 5 um morguninn. Kræst, þetta lið
maður!! Á laugardeginum bauð frænka hennar Cassie okkur svo á Ihop sem er ekta amerískur morgunverðarstaður með ekta pönnsum og svona sveittheit, hafði aldrei prófað svona. Fékk mér í raun dessert í morgunmat, kýs cheeriosið mitt frekar á morgnanna en það var upplifun að prófa þetta. Hún keyrði svo með okkur að fínu ströndunum sem eru mjög vinsælar á sumrin.
Á sunnudeginum vildi svo skemmtilega til að Dipak var staddur í New Haven hjá
vini sínum og bauð hann okkur í lunch. Hann er s.s. indverskur vinur okkar sem við kynntumst í
fyrstu Boston ferðinni. Æðislega gaman og
áhugavert að hitta á þá, Dipak útskrifaðist s.s. úr Harvard í vor og svo er
vinur hans í læknisfræðinni í Yale.

Við Cassie að bíða eftir kalkúninum.

Tilbúin í flugið.

Krossa fingur. Hún var svo hrædd greyið.

Ógeðslega gaman.

Long Island

Krúttlegi frændi hennar.

Cassie og frænka hennar á Ihop.
Ég og Íris fórum svo á Michael Bublé tónleika í Mohegan Sun, fjúffpúff hvað það var mikil upplifun, Mohegan Sun er s.s. risa spilavíti hér í CT. Þetta komst allavega á topp 5 listann minn. Tónleikarnir voru æði og kom hann þvílíkt mikið á óvart og einnig upphitunar hljómsveitin hans sem heitir Naturally7. Tékk it át.

Ég og Bublé urðum svo ástfangin að við ákváðum að gifta okkur.

Troðfull höll.
Ég og Íris kíktum svo til Boston einn sunnudaginn, keyrðum um morguninn með vinafólki Tinnu og Óla. Röltum um í rólegheitunum, fengum okkur mexíkóst í gogginn og heimsóttum svo uppáhalds búðirnar okkar sem heita LF stores og svo Urban. Ég festi loksins kaup á veski ;-) jippei.. Skutluðum svo vinafólki þeirra upp á flugvöll og ákváðum að keyra aftur inn í borgina og hittum Dipak á California Pizza Kitchen og fengum okkur að borða. Rosa stuð.. Hann er búinn að lofa okkur að taka okkur í túr um Harvard næst þegar við komum til Boston, ákváðum við að þiggja það.

Með nýja veskið mitt í kalda veðrinu í Boston.

Íris sæta.
Helgina eftir það tók ég svo lestina til Cassie á föstudegi
og kíktum við svo til Manhattan á laugardeginum í afmæli til Dipaks og vina
hans. Á sunnudeginum enduðum við svo í íslenskri
pönnukökuveislu hjá Siggu og Arnari og komu Óli og Tinna þangað í heimsókn. Tók því miður engar myndir.
Inn á milli þessara helga hef ég verið svakalega dugleg að baka
með henni Írisi og hefur Brimar verið duglegur að hjálpa til. Við bjuggum til
súkkulaðibitakökur, trompkökur, lakkrístoppa, piparkökur sem Brimar málaði,
kanilsnúða og svo er ég orðin þvílíkur meistari í íslenskum pönnsum. Hér er
búið að kingja niður snjó og var skólum meira að segja frestað og búðum lokað út
af snjókomu og sagt að þetta væri stormur - klikkaðir kanar, hahaha. Ég og Brimar erum búin að kanna snjóinn vel og erum búin að fara einu sinni að renna okkur í skíðabrekkunni hans, svakalega gaman.

Brimar krúsí að baka piparkökur.

og svo voru þær auðvitað málaðar daginn eftir.

Sótti Brimar einn daginn í skólann og fór á hjóli
Þurftum svo að labba heim og þá kom hellidemba
og það var ekki til þurr blettur á okkur og fór í gegnum
úlpurnar og læti.

Ég og Brimar krútt að kanna fyrsta snjóinn sem kom.

Brimar þurfti auðvitað að fá að smella mynd, tókst bara rosa vel hjá stráksa.

Stríðnispúki í mínum.
Foreldrar hans Óla komu síðan í gær með fullt af pökkum og nammi frá familíunni minni. Fékk meira að segja lítið hangikjöt og laufabrauð sem ég og Telma ætlum að elda. Ég fékk alveg kökk í hálsinn þegar ég sá þetta allt, langaði svo mikið til Íslands. Var næstum því búin að kaupa mér flug í gær en ákvað síðan að taka skynsemina á þetta. En fyrir ykkur sem ekki vitið þá mun ég dvelja hjá henni Telmu minni um jól og áramót á Manhattan. Sofie sænska vinkona okkar ætlar líka að halda upp á jólin með okkur og verður þetta eflaust smá svona Sex and the city fílingur. Verður án efa frábært að prófa e-ð nýtt og ekki oft sem maður fær tækifæri á að upplifa Manhattan á þessum dýrðar dögum.
Ég bara gat ekki lagt af stað áður en ég hefði kastað inn smá bloggi til ykkar.
Aldrei að vita nema ég bloggi frá Manhattan um jólin en skulum fara varlega í
að lofa. Haha.
Jæja, ætla að fara að drífa mig í að pakka niður áður en ég legg af stað til Manhattan.
Knús og kel á línuna og GLEÐILEG JÓL!!!!
Ykkar,
Ásdís Svava
New Haven
Fimmtudaginn í þarsíðustu viku kíktum ég, Íris og Cassie aðeins út í New Haven með vinum hennar Cassie. Við fórum á einhvern skemmtistað sem ég man ekki alveg hvað heitir(er svo fáránlega gleymin alltaf) og ég skemmti mér alveg konunglega. Þetta var svona EKTA amerískur staður, GEGGJUÐ tónlist og hef ég sjaldan dansað jafn mikið. Okkur fannst reyndar alveg svakalega áhugavert hvernig fólkið þarna var að dansa, en það dansaði margt saman í hrúgu og settu rassana inn og út í takt - AFAR innilegt og smekklegt. Í hvert einasta skipti sem einihver strákur vildi dansa við mig sagðist ég því miður ekki dansa svona dansa, nett leiðinleg stelpa. Þetta var klárlega upplifun ;-) Síðan keyrði ég bílinn hennar Cassie heim til West Hartford svo ég gæti lagt beinustu leið af stað aftur til New Haven um morguninn þegar ég væri búin að skutla Brimari í skólann.

Ég eins og lítill kínverji.

Íris og Cassie sætu
Tók smá vídjó af fólkinu að dansa, veit ekki alveg hversu skýrt það er. En þetta var áhugavert. hahaha
Á föstudeginum tókum ég og Cassie lestina saman til New York og eyddum við helginni þar enda var hún Pattra mín komin að heimsækja mig ;-)
Ég blogga seinna í dag um þá ferð og um Boston ferðina um síðustu helgi. Ætla að ná að skjótast á Starbucks áður en ég sæki kútinn í skólann. Ég verð að hafa þetta svona í bútum enda hef ég verið svo ömurleg að blogga - fyrirgefið enn og aftur.
BUSYBUSYBUSY
Úpsadeisí - fyrirgefið þetta mánaðarbloggleysi kæru vinir og
vandamenn.
Af mér er allt frábært að frétta og aðal ástæðan fyrir þessu bloggleysi mínu
hlýtur í raun að vera sú að ég sé að skemmta mér konunglega - sem ég er svo
sannarlega að gera.
Ég er búin að kynnast henni Cassie sem ég sagði ykkur frá í síðasta bloggi og
höfum við verið alveg óaðskiljanlegar síðan - yndisleg stúlka.
Það er jú alveg heill hellingur búinn að gerast síðan ég bloggaði síðast enda
kominn næstum mánuður þannig við skulum bara reyna að hafa þetta stutt og
laggott svo þetta verði ekki alveg þvílíkt boring lesning.
*Helgin 24-26 okt. kíktum ég og Cassie í helgarferð til Boston. Sú ferð var
þvílíkt skemmtileg og kom verulega á óvart. Upphaflega ætluðum við að gista hjá
Chris vini hennar sem býr á Newbury Street en enduðum reyndar á því að dvelja hjá Paul sem er vinur hans Péturs Óskars. Hann býr í svakalega flottri íbúð og var svo yndislegur að leyfa okkur að gista hjá sér. Helgin einkenndist af þessu: Við röltum um Newbury Street, versluðum í Urban Outfitters, borðuðum geggjaðan mexíkanskan mat, kíktum í New England Aquarium og auðvitað fórum við á klúbba/bari - hvað annað. Hefði sagt ykkur mun meira frá þessari helgi ef það væri ekki svona langt um liðið en leyfi nokkrum myndum að fylgja.

Cassie, ég og Chris á Sonsie's.

Ég, Pétur, Mike og Cassie á klúbb í Boston.

Við snúllur á ógó gúmmelaði góðum mexíkóskum stað á Newbury St.

Á röltinu um Boston

Mike, Cassie og Paul á barnum Barlola.
*Fyrstu helgina í nóvember var hið árlega Halloween haldið. Jesús minn góður, þetta var engin smá upplifun. Ég og Cassie tókum lestina til New York frá New Haven seinnipartinn á föstudeginum og fórum beinustu leið til vinkvenna hennar til að hafa okkur til. Við vorum allar 6 klæddar í dómarabúninga með flautur.
Við byrjuðum á því að fara í partý hjá nágrönnum stelpnanna, sáum þar t.d. ólétta nunnu, E.T. og hund í svínabúning - rosa nett. Næst lá leiðin í hótelpartý og ákváðum við að koma við á Times Square í leiðinni og þvílík og önnur eins klikkun. Fólk var alveg að missa sig í að taka myndir af okkur og voru eflaust að minnsta kosti 30 myndavélar á lofti hvert sem við löbbuðum og kvörtuðu löggurnar yfir því að við stífluðum umferð. Kíktum svo á nokkra klúbba og dönsuðum af okkur rassana. Við snúllur tókum lestina svo aftur um morguninn til New Haven og ákváðum að taka því bara rólega sem eftir var helgarinnar.

Komnar í flottu búningana.

Rákumst á þessi æðislegu brjóst á Times Square


Við með Jackie

Alveg fáránlega líkur Austin Powers.
*Aðra helgina í nóvember ákváðum ég og Cassie bara að vera rólegar saman í New Haven, kíktum út á föstudeginum og var það þvílíkt skemmtilegt en ákváðum svo að taka því rólega á laugardeginum, elduðum mexíkóst og höfðum það rosa kósý. Á sunnudeginum var Cassie svo góð að skutla mér heim því það var aupair samkoma í West Hartford og voru um 30 aupair stelpur samankomnar til að kynna landið sitt. Ég og Íris bökuðum íslenskar pönnukökur og vorum með kynningu um Ísland - allir að sjálfsögðu þvílíkt hrifnir af fallega landinu okkar.



Ég er nýkomin inn úr dyrunum frá Boston og er alveg að kálast úr þreytu, ætla að blogga á morgun um helgina 14-17 nóv. þegar elsku Pattra mín kom í heimsókn og svo um síðustu helgi. Vonandi bætti ég þetta smá upp með þessu litla bloggi.
Heyrumst aftur á morgun - er að leka niður ;-)
New Haven - Boston - Manhattan
Jæja, þá er ég búin að afreka það að keyra ALEIN til New Haven og ÁN GPS tækis - geri nú aðrir betur. Þetta er um 40 mín. keyrsla og þarf ég að skipta 2svar um hraðbraut en ef maður fylgist afar vel með skiltunum og er með það á hreinu hvaða exit maður á að taka þá á þetta barasta ekki að klikka. Ef maður tekur hins vegar vitlaust exit þá fer í raun allt til fjandans en nóg um það.
Ég ákvað s.s. að kíkja til Cassie síðastliðið miðvikudagskvöld en hún er nanny fyrir íslenska fjölskyldu sem býr í New Haven. Cassie er frá North Carolina og er hún hálf amerísk og hálf Puerto Ric-an og talar því reiprennandi spænsku líka - algjör pæja. Við vorum búnar að vera í net og símasambandi en höfðum aldrei hisst áður og var því smá spenningur í gangi - þið skiljið. Hún hefur mikinn áhuga á salsa og fórum við á uppáhalds staðinn hennar í New Hawen sem er alltaf með salsakvöld á miðvikudögum og vááá... Þar voru allir að dansa og strákar að bjóða stelpum upp og svona gaman. Ég var reyndar frekar leiðinleg við strákana og sagðist ætla að dansa næst, hahaha - ætlaði nú ekki að fara að gera mig að fífli svona fyrsta kvöldið en einhvern tímann er allt fyrst. Ef maður mætir fyrr þá getur maður fengið kennslu og er ég að spá í að gera það næst enda stefnan á að verða fastagestur þarna á miðvikudögum og auðvitað verða þrælflink að dansa SALSA ;þ... Þarna voru professional dansarar ásamt öðru góðu fólki og ekkert smá gaman að prófa e-ð svona nýtt og skemmtilegt.

Þetta er Cassie og var þetta því miður eina myndin sem ég tók á miðvikudaginn
Á eftir kemur Cassie svo að sækja mig og brunum við alla leið til Boston þar sem við ætlum að dvelja alla helgina. Chris vinur hennar Cassie var svo góður að leyfa okkur að gista hjá sér og er hann búinn að skipuleggja e-ð húllumhæ fyrir okkur pæjurnar - for sure. Þess til gamans má geta að Chris býr á Newbury Street sem er jú aðal verslunargatan í Boston - ekki leiðinlegt það.
Aðal hausverkurinn er samt að reyna að finna Halloween búning fyrir næstu helgi en vonandi á ég eftir að finna hann í Boston. Cassie ætlar að vera dómari með flautu og er svona spurning hvort ég ætti að joina henni eða þá að finna e-ð annað spennandi - kannski lögga, Pocahontas eða Cleopatra. Hvað finnst ykkur???? HJÁLPHJÁLP!!!
En ég lofa myndum og bloggi eftir helgi. Vildi bara láta vita af mér.
Ég er farin að pakka niður og gera mig fína.
Knús og kel á línuna!!
-Ásdís Svava
UPDATE!!
Langaði bara að segja smá hæ og kasta á ykkur kveðju með leðju.....djók....smá rím.
Aggggglavega... Minns er bara búinn að hafa það agalega gott hérna í West-Hartford undanfarna daga.
Á ég að leyfa ykkur að fá smá update? ;o)
Ókeimm, bara smá...
* Ég og Íris skelltum okkur í miðbæinn hérna á miðvikudagskvöldinu og fórum í seinnabíó(alls ekki góð hugmynd) á myndina Body of Lies með Leonardo Dicaprio og Russell Crowe exhottí. Sjæse,, munið þið samt eftir því þegar Russell Crowe var hönk en er núna bara með mjög svo myndarlega matarbuuuumbu?

Russell babe!!
Eeeeen AUÐVITAÐ sofnaði ég eins og vanalega og þá örugglega svona 10 sinnum þannig að ég get lítið sagt ykkur hvort myndin hafi verið góð eður ei en Írisi fannst hún fín;þ Held að ég erfi þessi svefngen úr móðurætt og er alveg svakalegt að geta ekki haldið augunum opnum þó mann langi MIKIÐ. Fyrr um kvöldið höfðum við krassað miniminimini tónleika á torginu hérna og einhverjir gæjar með dredda voru að spila reggie tónlist. Fólk var í þvílíku stuði og ALLIR að dansa. Ótrúlega gaman að sjá hvað fólk var að skemmta sér vel, fólk á Íslandi hefði eflaust bara staðið stíft þó vel hefði líkað....nei kannski ekki allir en sumir allavega. Svo til að minnast á það þá ákváðum við að deila gómsætri ostaköku á Cheesecake á meðan við dilluðum bossunum við reggiebeggie!!!! DÓRA=ÖFUND ;o)
* Á fimmtudaginn fór ég með Tinnu og Óla til Avon til að vera með Brimari í pumpkin patch, rosa krúsílegt að sjá alla krakkana með sín eigin mini pumpkin.

Ég og stóru graskerin(pumpkin)
Ég fór svo með Brimari í karatetíma númer 2 og vááá, það er krúttlegt. Um kvöldið fórum við út að borða aftur í Avon og buðum Írisi með. Við fórum á uppáhalds pizzustaðinn þeirra sem heitir Flat Bread og er með eldbakaðar lífrænar pizzur og geggjuð sallöt með geitaosti. ÓGEÐSLEGA GOTT!!!

Saddar og sáttar á Flat Bread !!
Ég og Íris kíktum svo tvær á kaffihús/bar hérna í bænum sem heitir Elbow room og settumst upp á rooftoppið og fengum okkur heitt súkkulaði - sem við höldum þó að hafi bara verið ómerkilegt Swiss Miss. Ágætt þó... Believe it or not en þá hékk sjálfur 50 Cent á þessum stað fyrir ekki svo mörgum árum. Hann átti hús hérna rétt hjá!! Ekki amarlegt það;þ
* Ég útbjó fajitas fyrir liðið á föstudaginn og svo var hún Fernanda frá Costa Rica svo góð að bjóða mér og Írisi í SEINNAbíó(TAKA 2) og fórum við og sáum myndina The Secret Life of Bees með Jennifer Hudson og Alicia Keys svo dæmi séu nefnd. Góðir hálsar!!! ÉG sofnaði ekki í eina sekúndu, húrra fyrir mér. Veit ekki hvort að það var bara M&M peanut butter sem hélt mér gangandi. Allavega skref í rétta átt!!
* Íris ákvað svo að skella sér í Nýju Jorkina með Miu sinni í gærmorgun. Ég og Fernanda ákváðum að láta það ekki stoppa okkur og eyddum deginum saman og fengum okkur m.a. ís í bestu ísbúðinni sem heitir Friendly´s og er svona ekta amerískur staður. Þar sátu ungir sem aldnir og gæddu sér á dýrindis kræsingum. Við kíktum svo aðeins í Target til að skoða Halloween dót og þar er sko hægt að gramsa skal ég ykkur segja. Um kvöldið var minns svo bara að passa þrjá krúsí gríslinga og mikið fjör á bæ;o) Fernanda kom svo í heimsókn og kenndi mér smá spænsku eftir að börnin voru sofnuð. Gaman að minnast á það að Fernanda hefur ALDREI séð snjó á sinni ævi og er því mikil eftirvænting hjá henni fyrir komandi vetri. Ég á að hjálpa henni að kaupa útivistarföt því hún kann ekkert á það!! HAHA..
Ómæ gosh samt, ég held án gríns að ég sé með einhver svertingja gen í mér. Ég er alltaf að hlusta á einhverja rapp stöð á meðan ég er í ræktinni og er að fíla það svooo í botn. HAHAHA. Kom sjálfri mér þvílíkt á óvart eiginlega. Eitt lagið er t.d.
og ég veit að einhver ykkar mun hlæja.
En svo er þetta uppáhalds lagið mitt um þessar mundir:
:):):):)
Nú ligg ég bara í leti enda vaknaði ég kl 7 í morgun við bank frá gríslingunum sem vildu að ÉG myndi horfa með þeim á barnatímann og borða með þeim morgunmat. ALGJÖRAR DÚLLUR.
Á miðvikudaginn er svo ferðinni heitið til New Haven að hitta Cassie í fyrsta skipti og ætlum við saman á salsakvöld á uppáhalds staðnum hennar. Hún er s.s. amerísk stelpa frá North Carolina og er nanny fyrir vinafólk Óla og Tinnu í New Haven. Við ætlum svo að kíkja til Boston um næstu helgi og fáum að krassa hjá vini hennar. Verður án efa gamangaman. Jippeijæjeiii
Besos ;)
Hér rignir........
Fólk er byrjað að gera allt tilbúið fyrir Halloween og má sjá alls kyns dóterí fyrir utan húsin hérna, allt frá pumpkin upp í RISA fuglahræður. Ég og Brimar fórum einmitt í Stop and Shop fyrir helgi til þess að velja pumpkin, sá stutti valdi jú þessi stærstu og átti ég bágt með að halda á þessu út í bíl - þurfti að taka nokkur svona hvíli stopp, þó ég lyfti jú lóðum, stundum allavega.

Brimar krúsí að velja pumpkin til að setja fyrir utan húsið okkar.
Jæja - við skulum bara demba okkur í helgina.
Rútan var tekin til Manhattan á föstudagsmorgninum og gat ég í fyrsta skipti á ævinni lesið í rútu og þvílíkur og annar eins munur, þetta leið eins og skot og ég var mætt á svæðið einn, tveir og bingó. Fannst svo sorglegt þegar ég sá eina mömmuna gefa börnunum sínum McDonalds í hádegismat og ég get svo svarið það að yngsta beibíið var rétt skriðið yfir 1. árs aldurinn. Eeeeeeen þetta er því miður voða eðlilegt fyrir marga hérna enda ódýrasti og einfaldasti kosturinn.....en yfir í annað....
Telma og Lísbet voru svo sætar að koma og sækja mig á rútustöðina því Sofie var enn að vinna. Við skelltum okkur í hollustu búð og fengum okkur að borða og því næst lá leiðin heim til þeirra þar sem við höfðum okkur til fyrir kvöldið. Við fórum s.s. út með svona "promoterum", þeir vinna víst við að fá huggulegar stelpur inn á staði og fáum við frítt borð og fría drykki í staðinn, ekkkki verra það enda er kreppa í gangi og eins gott að eyða peningunum á skynsaman hátt ;þ Og talandi um þessa promotera, djísös búbbí, einn promoterinn var með stærstu túttur sem ég hef á ævi minni séð og til að toppa það var hann í einhverjum svakalegum túttubol... Við héldum fyrst að þetta væri e-ð svaka grín og drengurinn væri með einhverja púða inn á sér, en NEIIIII, þetta voru hans titts og kræst hvað ég hló mikið.

Promoterarnir. Hann eyðir eflaust smá tíma í bekkpressunni enda eru þessi brjóst guðdómleg og hann er afar stoltur af þeim.
Fyrst fórum við á bar sem heitir Highbar og er á 49 st. og 8 av. Sá staður er uppi á rooftoppi og ekkert smá flottur en því næst lá leiðin á heitan klúbb sem heitir Kiss and fly sem er í Meatpacking district og spilar hann aðallega house tónlist. Þar var sama sagan með okkur skvísurnar, við fengum borð og drykki enda forrréttindi að fá að hafa okkur inni á stöðunum......djók.

Girls night out
Fabiano vinur hennar Lísbetar kom meira að segja alla leið úr boði hjá borgarstjóranum honum Bloomberg baby og kippti hann einni kampavínsflösku með til að geta skálað með skvísunum.

Skálað í kampavín!!
Ég og Sofie héldum partýinu gangandi og héldum á stað sem heitir 1 Oak sem er mesti snobbstaður sem ég hef séð en þar dönsuðum við fram á rauða nótt. Þess má til gamans geta, að við enduðum kvöldið á því að fara á toppklassa staðinn McDonalds enda er hann bara við hliðina á byggingunni sem Sofie býr í en anyways... þegar við erum að labba inn á staðinn kemur einhver gaur og horfir fáránlega á okkur og segir: Are you seriously going in there? Ég og Sofie sprungum úr hlátri þegar við vorum komnar inn en ætluðum ekki að láta þetta stoppa okkur, eins gott fyrir mig samt, afgreiðslumaðurinn á McDonalds bað mig nefnilega um að giftast sér og gaf mér eplaköku í kaupbæti. HEPPIN.
Daginn eftir tókum við því rólega og röltum um Manhattan og hittum Lísbet og Telmu í brunch en síðan var það bara rósavín og snakk heima hjá Sofie áður en hápunktur helgarinnar tók við: RAY LAMONTAGNE í Radio City Music Hall. Tónleikarnir voru magnaðir og var stórkostlegt þegar hann söng lagið Trouble, þá stóðu allir 6000 áhorfendurnir upp og lyftu upp bláu lýsandi drykkjarpinnunum sínum og var kallinn klappaður upp 3svar sinnum, ekki meira né minna. MAGNAÐ!!! Mæli líka með myndasyrpunni á myndasíðunni minni af hressu vinkonunum sem dönsuðu líkt og þær væru á rokktónleikum, aðeins að misskilja fallegu steminguna sem átti sér stað en fólk var í hláturskrampa við að fylgjast með þeim og þar á meðal við;o)..........

Sofie plataði mig í að kaupa margaritu en því miður fannst mér það ekki eins gott og henni.

Sofie yndi. Synd að við tvær skulum ekki búa á sama stað enda er hún algjör gullmoli.
Eftir tónleikana fórum við á Juniors og fengum okkur síðbúinn kvöldverð. Pasta og ostakaka urðu fyrir valinu og nammm, þessi ostakaka er sú besta - ég aftur þangað bráðum. Enduðum svo kvöldið á því að fara upp á þakið á byggingunni hennar Sofie. Byggingin er 43. hæðir og þið getið rétt ímyndað ykkur hvernig útsýnið er - ekkert smá flott og fallegt. Þvílíkt góður endir á frábæru kvöldi. Takk Ray og takk Manhattan!!! Þið fullnægðuð mér þetta kvöld....haha.....

Smá partur af útsýninu af þakinu hjá Sofie.
Við skotturnar vorum vaknaðar fyrir allar aldir og ákváðum að taka daginn snemma og fara í Empire State bygginguna en hættum síðan við þegar við vorum komnar á staðinn enda hefðum við þurft að bíða í 2 klst. Sóun á tíma. Hugsuðum með okkur að byggingin yrði eflaust þarna næst þegar ég kæmi - vonum það allavega. Við ákváðum því að rölta um Manhattan og njóta góða veðursins í 25 stiga hita og röltum í gegnum þvílíkt skemmtilegan flóamarkað. Sáum meðal annars falleg brúðhjón og voru þau ein af 3ur brúðhjónum sem við sáum þennan dag. Ógisslega sætt.
Komum við á Times Square og fórum í M&M búðina og fjárfestum í Peanut Butter og keyptum okkur nesti sem við tókum síðan með í Central Park. Þar eyddum við svo deginum í sólbaði og skoðunarferðum um garðinn. Þessi garður er geggjaður og ef ég ætti heima á Manhattan kæmi ég þangað á hverjum degi til að skokka eða hjóla. Við fundum svo hina ýmsu staði sem þær í Sex and the City voru mikið á, gamangaman það.

Sofie og Empire State.

Ég í M&M búðinni góðu.

Sofie fannst þetta svona krúttlegt ;o)

Legið í sólinni í Central Park
En sorrý fólks, þetta er mega leiðinlegt blogg enda fer ég alveg að slefa á tölvuna úr þreytu. Fór nefnilega aftur út að hlaupa með Írisi í reservoirinu hérna og daman búin að skokka 2svar í dag. Duglega ég. Agalegt hvað ég heyri samt sjaldan í ykkur öllum, ég er svo sjaldan í tölvunni, þið verðið bara að senda mér e-mail. Er farin að sakna ykkar allra. Pabbi hringdi einmitt í mig á sunnudaginn til að tékka hvort ég væri ekki alveg örugglega á lífi, hef ekki heyrt í neinum svo lengi, leengi, leeengi. Ég hlýt að hafa það svona svakalega gaman ;o)
Ég er svo að spá í að kaupa mér miða á Coldplay í New Jersey eftir 2 vikur. Held það sé svo þess virði.
Takk allir fyrir kommentin og ég stend við mín loforð - setti nefnilega inn FULLT af myndum á myndasíðuna mína http://www.imageevent.com/asdissvava. Ekki vera feimin við að senda mér tölvupóst til að fá passwordið. Ég bít ekki, LOFA!!
Þangað til næst,
-Ásdís MontagneDonalds
*Always look at the bright side of life*
Held að ég dúndri inn eins og einu bloggi fyrir ykkur svona til að friða samviskuna, líka fyrir hana Dóru Sif mína sem bíður spennt eftir fréttum.
Nenni einu sinni ekki að eyða setningum, orðum, stöfum né tárum í það sem er að gerast heima á Íslandi, gef þessu ástandi orðið PRUMP. Eitt er þó víst að ég læt kreditkortið í prisonið og læt aupair launin mín duga - í bili allavega. Vikulaunin eru samt komin vel yfir 20 þús. kallinn ef ég umbreyti dollurunum yfir í krónur. $$$$$. Ráðlegg fólki bara að taka Secret sér í hönd og hefja lestur, aldrei að vita hvað gerist.
Fyndið, það er svona eitt og annað sem ég hef tekið eftir að er öðruvísi hér heldur en á Íslandi. Ég skellti mér t.d. í gufu eftir ræktina um daginn og þar voru tveir mynda menn bara mættir fullklæddir og í SKÓM og sátu þar eins og ekkert væri eðlilegra. Á meðan sat ég í pjöttlunum mínum svoleiðis að drepast úr hita.
Ég var líka stödd á bókasafninu fyrir nokkrum dögum og sat hin rólegasta en neiiiii, þegar ég lít upp, hvað haldið þið að hafi verið beint fyrir framan nebbann á mér INNI á bókasafninu??? RISASTÓR hundur bara mættur á svæðið og enginn kippti sér upp við það, hahaha. AFAR eðlilegt það..
Fyrir viku síðan var fyrsti aupair hittingurinn og var hann haldinn heima hjá hinni málglöðu Kathy Cristie sem er counselorinn okkar. Þar sátum við um 15 stykki og spjölluðum um daginn og veginn fram á kvöld og gæddum okkur á heimabökuðum kræsingum. Ljómandi fínar stelpur svona til að minnast á það. En við þurfum s.s. að ljúka 6 credits í skóla á aupair árinu okkar. Ég er jafnvel að spá í að taka fag í Hartford háskólanum í sögu og fara einnig í danstíma, á að fá credit fyrir það líka. Endalaust mikið sem hægt er að gera en ég er svona að hugsa þetta, ein stelpan er meira að segja að fara í ensku í Harvard og þarf hún að mæta í tíma á hverjum laugardegi í 3 mánuði. Nokkuð spennandi það.
Ég og Íris erum búnar að vera svaka duglegar að hitta hinar aupair stelpurnar, við erum s.s. með reglu í gangi að þegar við hittumst þá reynum við alltaf að hafa einhverja aðra stelpu með svo við æfum okkur í enskunni í leiðinni...LÚÐAR.. Okkur líður engan veginn eins og við séum í Ameríku enda tölum við íslensku við familíuna okkar, maturinn sem við borðum er nánast eins og á Íslandi nema í öðruvísi umbúðum og svo höfum við auðvitað hvora aðra. Við erum þó að reyna okkar besta...anyways... Ætla að leyfa ykkur að sjá smá bút af því sem ég hef verið að gera síðustu daga.
- fimmtudagur: þá fór ég, Íris og stelpa frá Sviss sem heitir Mia, út að borða í Plainville á stað sem heitir Applebee´s og í framhaldi af því skelltum við okkur svo í bíó. Fórum á myndina Nights in Rodanthe sem var aaaaaaaððððððeiiiiiiiiiiiiiiiiinssssssssssss OF væmin fyrir minn smekk. Ég byrjaði bara sjálfkrafa að springa úr hlátri og gat alls ekki hamið mig - fólk átti í raun að vera gráti næst. Ég sofnaði líka í svona 5 mín enda er háttatíminn minn alltaf kl 10. AHA, ég veit, ALGJÖR lúði.
- föstudagur: Ég hitti Írisi, Miu, Anne frá Þýskalandi og stelpu frá Kóreu sem ber nafnið Anna í USA. Við enduðum á því að fara AFTUR út að borða á Applebee´s þar sem það var það "hollasta" sem í boði var og var það frekar vandræðalegt enda kannaðist strákurinn við okkur frá kvöldinu áður. Þessi staður er svona EKTA amerískur staður og ekkert smá góður. Leiðin lá svo í keilu og ég TAPAÐI. Verð samt aðeins að fá að skrifa um hana Önnu frá Kóreu. Hún er sko algjör dúlla, skilur varla stakt orð í ensku og eina sem hún kann að segja er YES og NICE TO MEET YOU og svo brosir hún bara út í eitt og hlær. Hún vill líka taka myndir af öllu og vill hún alltaf að allir geri pís merki. Á aupair hittingnum okkar áttum við að segja frá áhugamálum okkar og þegar hún taldi upp áhugamálin sín þá sagðist hún hafa áhuga fyrir mjólk og hló síðan vel og lengi eftir á. Ég veit að ónefnd vinkona mín hefði mjög svo gaman af þessari stúlku og myndi eflaust hlæja sig máttlausa - stórkostleg stúlka.
Ég og Íris ákváðum svo að rölta um bæinn í West Hartford til að tékka á stemningunni sem var heldur betur súr en tókst okkur þrátt fyrir það að vera boðið í afmælispartý á laugardeginum. NETTAR VIÐ!!!
- laugardagur: Ég og Íris eyddum deginum í mallinu og gleymdum okkur aðeins í snyrtivörubúðinni Sephoru og komum út eins og dúkkulísur. Ég var meira að segja spurð hvort að ég hefði verið förðuð inni í búðinni, haha. Við fórum út að borða 3ðja kvöldið í röð og tókum Fernöndu frá Costa Rica með okkur. Í þetta sinn var Cheescake factory fyrir valinu og biðum við í næstum 2 klst. eftir borði - mikið lagt á sig fyrir borð á þessum ljúffenga stað. Þar var heldur betur gúffað í sig áður en við héldum í afmælispartýið. Við ætluðum fyrst ekki að þora inn í húsið en létum okkur þó gossa inn á endanum og voru móttökurnar frábærar. Þarna voru samankomnir tannlæknanemar + fleira fólk og ekkert smá skemmtilegt að hafa upplifað svona amerískt partý.

Ég, Íris og Fernanda í partýinu góða.

Þetta er forréttur á matseðlinum. Ég borðaði svona 2/8.

Það var nammidagur og þá mátti fá sér köku. Get fullvissað ykkur um það að þetta eru
bestu kökur í alheiminum.

Íris sætaspæta með ljúffenga húúúgggggggggulaði köku. Namm
- sunnudagur: Verð að fá að monta mig píínuoggu, eða mér finnst þetta heavy merkilegt. Ég keyrði til Boston á sunnudaginn, húrra fyrir mér;o) Allt gekk eins og í sögu og gott betur en það. Þannig að það má segja að ég sé ORÐIN herforingi í umferðinni.
Um helgina er ferðinni svo heitið til NYC til hennar Sofie minnar. Þar verður stefnt á að gerast smá túristi og skoða e-ð merkilegt og á laugardaginn förum við svo á tónleika með Ray Lamontagne. Gvöööð hvað ég hlakka til þess. Ég reyni að festa e-ð á filmu og setja inn á myndasíðuna til að bæta ykkur upp myndaleysi síðustu vikna. I know, ég er alls ekki nógu dugleg.
Ég er búin að vera svo dugleg að lesa enskar bækur eftir að ég kom út enda er frítíminn mikill og megið þið elskurnar mínar endilega setja hér í comments ef þið vitið um einhverjar bækur sem ykkur finnst MÖST að lesa. Ætla að láta þetta gott heita í bili og láta Eleven Minutes eftir Paulo Coelho svæfa mig. BEST að sofna út frá góðri bók.
Vil enda þetta með því að óska henni Mardísi innilega til hamingju með tvítugs afmælið. Vonandi áttu yndislegan dag í Barcelona. Knús á þig.
Lifið heil en ekki hálf!!!!
-Dísulína
Seint blogga sumir en blogga þó!!
Úúúúppppsss, ég er alveg að kúka á mig í blogginu verð ég að segja, afsakið mig innilega elsku vinir. Það er bara svo ógó mikið skemmtilegt hjá mér alltaf hreint. *mont*
En svo við byrjum nú á þessu leiðinlega........hvað er að frétta af litla Íslandi?!!!$???$? Ég er eiginlega bara fegin að ég sé stödd hérna í USA og þurfi ekki að horfa upp á þetta allt saman en reyni þó að fylgjast með. Krónan bara í lausu falli, dollarinn nánast orðinn 100 kall og ríkið orðið 75% eigandi í Glitni - agalegt ástand.
Einnig langar mig aðeins að kvarta yfir þessum flugum/pöddum hérna - EKKI aðdáandi nr. uno. Ég vaknaði s.s. einn morguninn með þetta myndarlega fjall á hægri kálfanum og mig hefur klæjað ískyggilega í þetta síðan - ógeeeeeeð sko. Það mætti halda að paddan hafi komið sér fyrir inni í kálfanum mínum því bólgan er svo mikil. Ég hlýt að vera með svona sætt blóð - eitthvað er það allavega.

Bólgan nær hærra upp en hnéð á mér. Og já, ég veit að þetta er ekkkkki girnilegt!!!
En fréttir eru helstar þessar:
- New York var æði. Ég tók reyndar ekki túristann á þetta í þessari ferð en mun gera það í þeirri næstu. Ég og Luam hin þýska tókum rútuna frá Hartford og vorum svo sóttar á lestar/rútustöðina af ungum íslenskum herramanni enda splunkunýjar í borginni og kunnum ingenting. Við fórum öll á sushi-staðinn KOI sem er með ljúffengasta sushi sem ég hef á ævi minni smakkað.
Við Luam hittum svo Lísbet og Telmu og kíktum á tjúttið með þeim á stað sem stelpurnar fara oft á sem heitir 1 Oak og eru víst oft einhver celeb þar að hrista á sér bossann. Stelpurnar sáu einmitt Adrian Grenier úr Entourage þar um daginn.
Á laugardeginum hitti ég og Luam hana Sofie okkar og eyddum við deginum á 34th Street, í Soho og Kínahverfinu í þessu mjög svo góða veðri. Ég verslaði þó ekki mikið en keypti mér þó einn hatt, hippaband og skó. Ég fór svo að sjálfsögðu með hattinn á tjúttið seinna um kvöldið og vakti hann mikla lukku.

Ég varð að testa ísinn í Soho og hann var ljúffengur í hitanum..
Um kvöldið skelltum við okkur út að borða með Lísbet og Telmu á stað sem heitir La Zapza sem leit mjög vel út í fyrstu. Ég og Telma ákváðum að vera nettar á því og pöntuðum okkur rauðsprettu og voru fyrstu bitarnir ljúffengir, BUT, allt í einu litum við Telma á hvora aðra með klíjuhrollssvip en byrjuðum í þann mund að springa úr hlátri með fullan munninn af fisk og gátum vart hamið okkur. Heyrðu, góðan daginn!!!!!! Haldið þið að það hafi ekki verið svona 6 bein uppi í okkur báðum og við misstum matarlistina á sekúndunni...takk fyrir, punktur...Við þurftum að sjálfsögðu ekki að borga dollara fyrir þetta.

Skááááál!!!!!!! Við á La Zapza áður en beinin komu til sögunnar.
Vinur hennar Telmu, hann Frankie tannlæknir bauð okkur svo í heimsókn til hans í gorgeous íbúðina sína. Við fórum svo með honum og tveimur gífurlega myndarlegum vinum hans á nýjan stað sem heitir Mr. West og var að sjálfsögðu tekin limma þangað. Ég las það einmitt í einhverju slúðurblaðinu að Kelly Rowland hefði verið á þessum skemmtistað þessa helgi en neiiii ég missti af henni - greyið ég.

Gellurnar mættar á Mr. West
Við stungum svo af og fórum á annan skemmtistað sem heitir Amelie og dönsuðum þar eins og enginn væri morgundagurinn.
Ég nýtti svo ferðina og keyrði með Tinnu heim því hún var líka e-ð að pæjast í NYC. Frábær helgi í alla staði og er stefnan sett á NYC helgina 10-12. okt. Þá mun ég mjög svo líklega fara á tónleika með honum Ray Lamontagne vini mínum. Vááá, hvað það mun verða nett...
-Síðustu daga hef ég bara verið að dúlla mér hér heima sem er alltaf jafn kósý. Mér finnst alveg yndislegt að fara í ræktina hérna og sitja líka á bókasafninu og lesa eða þá á kaffihúsunum hérna. Bara svo þið vitið þá leiðist mér ekki baun á meðan Brimar er í skólanum þannig, þið þurfið alls ekki að hafa áhyggjur af mér - alltaf full dagskrá.
-Síðastliðin helgi var sannkölluð afmælissprengja. Byrjaði á því að á föstudaginn fórum við í 2. ára afmæli til Hugó Þorra og kynntist ég nýju aupair stelpunni hans aðeins. Hún heitir Íris Eva og er árinu yngri en ég og það upp á dag,, mjög svo skemmtileg tilviljun.
Brimar hélt síðan upp á afmælið sitt á laugardagsmorgninum og var sjóræningjaþema í gangi og þvílíkt húllumhæ...því næst lá leiðin til New Haven(hálftíma fjarlægð) í annað 6. ára afmæli til íslenskrar fjölskyldu og ég tók hana Írisi með mér þangað. Við tvær stoppuðum nú stutt í boðinu þó það hafi verið alveg glimrandi fínt því næst lá leið okkar í miðbæ New Haven og ég get sagt ykkur að það var sko toppurinn á tilverunni. Fyrir ykkur sem ekki vitið þá er New Haven heimabær YALE háskólans. Við urðum gjörsamlega dolfallnar af þessum stað og vildum helst ekkert fara heim. Við skoðuðum okkur vel um í kringum háskólasvæðið og þar gengu um allskyns proffar í jakkafötunum/drögtum og er alveg ljóst að í skólanum er dresscode. Þetta var bara nákvæmlega eins og í bíómyndunum, án gríns. Aðrir voru svo í peysum eða bolum merktum Yale, greinilega afskaplega stoltir af því að ganga í þessum skóla.
Planið er svo að smygla sér inn í partý á campusnum innan tíðar og komast í klíkuna og jafnvel redda sér miða á íþróttaviðburð.

Ég væri ekkert á móti því að ganga í Yale.

Inni í garðinum hjá campusnum í Yale.

Aldrei að vita nema maður fjárfesti í eins og einni svona til að fitta inn í samfélagið þarna.
-Í gær keyrði ÉG svo til Boston með liðið. Tinna átti að mæta í flug seint um kvöldið og var planið að eyða smá tíma í borginni. Ég átti s.s. að æfa mig að keyra í leiðinni því eftir viku mun ég sækja Tinnu á flugvöllinn, ALEIN - finnst það rosa spennó sko. Það gekk bara glimrandi vel að keyra og ég held að þetta verði ekkert mál fyrir mig enda hörkukvendi í umferðinni.
Íris fékk líka að koma með og eyddum við nokkrum tímum saman á Newbury st. og var planið að fara út að borða á Cheesecake factory en við gleymdum okkur aðeins í Urban Outfitters og höfðum ekki tíma. Í staðinn var gúffað í sig delicious pizzu, Ben and Jerry´s og komið við í Sugar Heaven nammibúðinni og troðið enn meira í sig.
En Boston verður heimsótt ASAP aftur og túristinn verður tekinn á þetta til að byrja með. Þá ætla ég í útsýnistúr á bílabátnum sem Dóra Sif sagði mér frá;þ

Íris krúsí komin á Newbury St. Það byrjaði að rigna um leið og við stigum okkar fyrsta spor í Boston og þurftum við að fjárfesta í regnhlífum - þó ekkert til að grenja yfir.

Ég er strax orðin ástfangin!!

Sáum þennan rosalega flotta gosbrunn sem við vitum því miður voða lítið um.
Þetta er orðin ansi löng færsla og verð ég heldur betur að rífa mig upp á rassgatinu og vera duglegri að henda fréttum hingað inn svo þetta geti orðið aðeins skemmtilegri lesning fyrir vikið. Þannig er nú bara mál með vexti að mér finnst bara ekkert svakalega gaman að hanga í tölvunni, hef svo mikið annað skemmtilegra að gera hérna. Annars er ég alveg með sögur á lager fyrir ykkur...
En á morgun er s.s. fyrsti aupair hittingurinn og erum við að fara að hittast um 20 stelpur heima hjá counselornum okkar og verður það afar spennandi. Þá get ég vonandi farið að hitta stelpurnar oftar á kvöldin og kynnst fleira fólki og svona.
Vil enda þetta á því að óska FH-ingum innilega til hamingju með Íslandsmeistaratitilinn og þá sérstaklega honum Matthíasi besta vini mínum - búinn að standa sig alveg frábærlega strákurinn. Takk líka allir þið sem kommentið, það er einum of gaman að sjá hverjir eru að lesa.
Fyrir áhugasama þá hef ég verið að dunda mér við að setja inn fleiri myndir úr þessum ferðum á myndasíðuna mína sem er hérna í tenglum til hliðar. Endilega sendið á mig póst ef þið viljið lykilorðið - ekki vera feimin við að senda.
Þangað til næst kæru hálsar..
RISA knús,
-D(L)ísa í Undralandi
LOVING LIFE
*Sögustund*
Hæææææ,
Jæja, má til með að segja ykkur það sem ég gerði í gær.
Dagurinn byrjaði bara á þessu hefðbundna:
*vakna kl. 07:30
*hafa til nesti fyrir Brimar, koma honum í fötin og gefa honum að borða
*hjóla í skólann og aftur heim
Ég hjólaði í ræktina þar sem ég púlaði eins og enginn væri morgundagurinn. Allt í besta með það, ákvað að nota tækifærið og keypti í matinn því ég bauðst til að elda kvöldmatinn. Ekki það að ég sé að setja e-ð út á matinn hérna - hann er nefnilega alltaf algjört gúmmelaði. Mig langaði bara að vera góð og leggja mitt af mörkum í eldhúsinu.
Ég klöngraðist á hjólinu heim með allt sem ég hafði keypt í íþróttatöskunni, fjúffffff það var erfiðara en ég hélt - svitnaði meira en sveitt svín gera á góðum degi.
Brimar klárar skólann alla daga kl 15:20 nema miðvikudaga, þá klárar hann kl. 14:00. Við hjóluðum niður í bæ og keyptum ís því veðrið var svo gott og fórum svo á Children´s Museum. Við hjóluðum að sjálfsögðu aftur heim. Það má segja að þetta hafi verið hjóladagurinn mikli og vorum við bæði tvö alveg dauðþreytt þegar við komum heim. Eeeeeen þá fór ég á fullt að elda ítölsku grænmetissúpuna og gekk það með eindæmum vel og voru allir vel saddir og glaðir.

Ég og Brimar að leika í Children´s Museum
Ég ætlaði svo að hitta Luam í gærkvöldi en neiiiii, hún kunni ekki að keyra til mín og ég ekki heldur til hennar þannig að það varð að bíða betri tíma. Það er þó ekki frásögu færandi nema það að Tinna og Óli stungu svo upp á því að ég fengi mér rúnt í mall-ið til að æfa mig smá að keyra. Þau gáfu mér NÁKVÆMAR upplýsingar hvert ég ætti að fara og hvort ég ætti að beygja til vinstri eða hægri.
Ég hoppa upp í bíl og keyri af stað, finn réttu göturnar og keyri þá síðustu á enda og viti menn, ég beygði ÓVART til vinstri í stað hægri og ég endaði uppi á RISASTÓRRI hraðbraut sem lá til New York, váátttsss hvað ég hló mikið af sjálfri mér. Ég sat stíf við stýrið með kúkinn í buxunum og var eitt stórt spurningarmerki í framan en beygði þó um leið og ég gat út af hraðbrautinni og hringdi í Óla. Það var náttúrulega kolniðamyrkur og plús það að ég rata ekki baun í bala - ekki ennþá allavega. Ég náði heilum 15 mínútum í mall-inu og náði þó að kaupa mér smá í Abercrombie;)
Jæja, þá var það heimleiðin, stúlkan auðvitað með sínar nákvæmu leiðbeiningar en neiiiiiiiiiiii, þá hafði ég farið úr mall-inu á vitlausum stað og auðvitað pössuðu leiðbeiningarnar ekki við þær sem þau höfðu gefið mér og ég endaði AFTUR upp á hraðbraut.
Ég komst þó heil á húfi heim og var mikið hlegið hér um kvöldið af þessum skemmtilega atburði. Ég er þó afar stolt af sjálfri mér að hafa kastað mér svona út í djúpu laugina og verð ég eflaust farin að keyra eins og herforingi í umferðinni innan skamms. Maður þarf víst oft að villast til að geta ratað.
Var bara að koma inn úr dyrunum, Luam fann s.s. út hvernig hún ætti að keyra til mín og sýndi mér svo í leiðinni, leiðina heim til sín. Jíbbíjæjei, nú getum við allavega farið að trallast e-ð saman á kvöldin.
Svo er það NY á morgun og get ég sagt ykkur að eftirvæntingin er mikil. Hey hallihúbba. LOFA að koma með ferðasögu og fullt af myndum eftir helgi.

Lag dagsins er svo Lost með Coldplay. Tékkið á því, það er æææææææði!!
Ætla að skottast á bókasafnið og finna mér einhverja terrific bók til að lesa.
Góða helgi,
Sídsá


